lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu blár – dabbi t

Loading...

troðfullir vasar, tilbúin í stríð
uppstrílaður, nokkuð föngulegur fýr
skammtímavermir já en vá hvað hann er hlýr
og þegar klukkan slær þrjú breytist ég í rándýr
vaninn rándýr. hvert fer rándýrið þá
getur verið dýrt að sitj´uppi með ásdísi rán
mætti samt segj´að það sé nóg til, eða hvað
allavega nóg til að ég sé bar´að gefa það
skál motherf-ckers, þar til að ég gefst upp
þó margir hafi sagt það þá er ennþá engin skellur
partýin ennþá eins og miklihvellur
því þeir sem fokka sér upp grimmt kunna ýmsar brellur
dætur einhvers, klæddar eins og mellur
með snuð og handaáburð já, algjörlega mellu
þú finnur vel að það angar allt af greddu
breytir fögrum fljóðum fljótt í fatafellur
þó margir hafi jafnvel hitt á ofjarl sinn
þá er ég bara ennþá fokking dolfallinn
í reykmett´ri íbúð fellur ógrinni orða
og sumir meira að segja búnir að kók´í sig homma
þetta sem að rífur inn að beini
það sem að fær þig til að hætt´að vera feimin
leyni ástæða þess að þú sért dreyminn
sem fær þig til að finnast að þú getir sigrað heiminn

ég segi alltaf bara já.
þó ég vit´það verði meir´en bara smá
raunveruleikinn er grár.

svo ég vil bara fá, fá, fá að vera blár

ég segi alltaf bara já.
þó ég vit´það verði meir´en bara smá
raunveruleikinn er grár.
svo ég vil bara fá, fá, fá að vera blár

skál, þarft ekki að segja mér það tvisvar
íbúðin í rúst, eins og aðkoman á slysstað
jáá þessir gæjar sem að lít´út eins og millar
hafa lengi vel sagt mér að ég þurf´að chilla
ég sé ´ett´ekki takast
heyr´allt sem þú segir en ég get´bar´ekki slakað
til helvítis og baka, með þrefaldan í klaka
og meðan aðrir fara heim um fimm er ég að far´að vaka
í dauða leit að eftirpartýum
nokkuð naskur já, eltur um af glanspíum.
heilinn í mér soðinn eins og sardínur
ég er ekki beint í ástandi að halda uppi standpínu
en þeim er svosem alveg sama
þær haf´í raun ekki neitt annað að fara
sitja þar sem fastast, samt alveg farnar
talandi tungum, kallaður þær arnar
menn bara dorma og kreista
reyn´eins og þeir geta jó að hald´í einhvern neista
freistað, það er ekki auðvelt að neita
plís bara allt nema raunveruleikann
allt sem þú átt, ég þigg það með þökk-m

hreyfingarlaus jó, ligg upp í bökk-m
tennurnar glamra, minnið er skemmt
og augun í mér orðin eins og lifrin í bent

ég segi alltaf bara já.
þó ég vit´það verði meir´en bara smá
raunveruleikinn er grár.
svo ég vil bara fá, fá, fá að vera blár

ég segi alltaf bara já.
þó ég vit´það verði meir´en bara smá
raunveruleikinn er grár.
svo ég vil bara fá, fá, fá að vera blár

ég finn hvernig sálin mín tengist
og hversu skýrt ég hugs´út fyrir mengið

en á sama tím´er eins og íbúðin þrengist
engist. já, bún´ða vaka of lengi
hjartað, missir úr slætti
menn farnir að minnast á að vera flæktir
edgy, steraðir, nást ekki sættir
þrátt fyrir allt ekki séns að ég hætti
það er drung´yfir borginni
skuggalegir menn sem að vilja eiga orð við mig
þetta fór miklu hraðar en ég bjóst við
úr fjölmennum partýum í einn inná klóssti
svo allt þetta glamur og glys-ah
var víst ekkert meir en einhver dapurleg klisja
og þessi áður litla saklausa sál
þráir ekkert heitar en að fá að vera blá

ég segi alltaf bara já.
þó ég vit´það verði meir´en bara smá
raunveruleikinn er grár.
svo ég vil bara fá, fá, fá að vera blár

ég segi alltaf bara já.
þó ég vit´það verði meir´en bara smá
raunveruleikinn er grár.
svo ég vil bara fá, fá, fá að vera blár

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...