lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu för – skalmold

Loading...

haldið upp á heiðina með mér,
höfuðin fjúka í nótt.
guðirnir gefa okkur þrótt.
guðirnir veita okkur þrótt til að sigra.
vinir, ykkar vígamóði her.
veitir mér liðveislu í nótt.
guðirnir gefa okkur þrótt.
guðirnar veita okkur þrótt til að sigra.

sver ég nú og sverðið legg,
svírann á og sundur hegg.
jórinn þreyttur, ég er sár.
jökullinn yfir gnæfir hár.

blóðugur með brotna hönd
berst ég einn um ókunn lönd.
held ég enn í veika von,
vígamaður óðinsson.

göngum móti glötun og dauða,
gjótur þar bíða og fen.
þar geta tryllingsleg trén
tekið þig niður og skellt þér á knén.
nýtum daginn og nóttina rauða,
neitum að ganga í fen.
vörumst að taki’ okkur trén.
gegn tý, þór og óðni við föllum á knén.

ófærur og dauðans dýr
drepa þann sem burtu flýr.
höldum áfram, heiðnir menn,
himnaranir þeir falla senn.

tölunni við týnum vrátt,
tættir sundur smátt og smátt.
held ég enn í veika von,
vígamaður óðinsson.

frændur mínir, fóstbræður,
fylgið mér um ófærur.
deyi sá er deyja á,
dugi sá er ætla má.

held ég upp á heiðina,
held ég verstu leiðina.
held ég enn í veika von,
vígamaður óðinsson.

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...