lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

femmi - bubbi morthens & stríð og friður lyrics

Loading...

í húsinu er eðla með átján þjóna
á efstu hæðinni er gömul kona að prjóna
og eitt herbergið geymir grafir ljótra orða
og grasið í stofunni er til þess að borða
hjartað í þér ólmast þú hrekkur í kút
þú komst inn en kemst ekki út

múmíur á sterum stríði þér hóta
eldhúsið er sláturhús þar beinin brjóta
löggur á spítti sem spyrja sífellt þess sama
í frystinum er freðin lappalaus dama
heilinn er maríneraður maginn í hnút
þú komst inn en kemst ekki út

þú veist ekki vakandi sofandi neitt
veröld þín með öllu var í gærkvöldi steikt
af draugum sem skófu höfuð þitt hreint
í gegnum blóðlitað mistrið gat enginn greint
kreppta fingur um hníf eða flöskustút
þú komst inn en þú kemst ekki út

ljónin eru útdauð og gresjan er auð
í staðinn gefur malbikið hýenum brauð
og gammarnir grafa með sinn sköllótta haus
gjafir dauðans þar til sálin verður laus
við holdið og þú hrekkur í kút
þú vaknar en kemst ekki út

Random Song Lyrics :

Popular

Loading...