
ástrós - bubbi morthens lyrics
[texti fyrir “ástrós”]
[vísa 1: bubbi]
hann var látinn er löggan kom á staðinn
lagði á mig hendur, sagði hún föl
hann var skrímsli og skaðinn sem hann olli
gaf mér engra annarra kosta völ
[brú: bubbi]
varð að vernda börnin, rjúfa þessa hlekki
þeir fella óða hunda er það ekki?
[vísa 2: bubbi]
hann lá á gólfinu á grúfu við borðið
fyrir utan, blikkandi blá ljós
í augum hennar var óveðrið horfið
hún sagði að nafnið sitt væri ástrós
[brú: bubbi]
varð að vernda þau, brjóta þessa hlekki
þeir drepa óða hunda er það ekki?
[viðlag: bubbi]
fyrstu árin, fyrstu tárin
fyrstu sárin, aftur og aftur
fyrsta höggið, fyrsta sjokkið
fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur
[vísa 3: bríet]
þegar hann drakk þá dó í honum ljósið
þá urðu augun hans sem svarta nótt
ég hélt þennan dag myndi ég deyja
ég stakk hann ótal sinnum þar til allt varð hljótt
[brú: bríet]
hvenær drepur maður mann og hvenær ekki?
ég stakk óðan hund, er það ekki?
[viðlag: bríet, bríet & bubbi]
fyrstu árin, fyrstu tárin
fyrstu sárin, aftur og aftur
fyrsta höggið, fyrsta sjokkið
fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur
fyrstu árin, fyrstu tárin
fyrstu sárin, aftur og aftur
fyrsta höggið, fyrsta sjokkið
fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur
fyrstu árin, fyrstu tárin
fyrstu sárin, aftur og aftur
fyrsta höggið, fyrsta sjokkið
fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur
fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur
fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur
Random Song Lyrics :
- bola de sabão - babado novo & cpm 22 lyrics
- nuty we krwi - flojd/wiro lyrics
- we welcome you home - possessed by paul james lyrics
- know me - three guests lyrics
- natural disaster - steep canyon rangers lyrics
- besoins - dilademilune lyrics
- ringa nengua - k master & spince seseme lyrics
- jigsaw - king gordy lyrics
- the clue - the charlestones lyrics
- real song - myka 9 lyrics