
fyrir löngu síðan - bubbi morthens lyrics
menn nýttu sér pólitísk sambönd sín
og sviku,það gerðu þeir
það tíðkaðist á tímim kalda stríðsins
og síðan ekki söguna meir
þetta gerðist fyrir löngu síðan,en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.því þá var það þjóðinni í hag
einu sinni var maður svo múraður
meðan annar átti ekki mat
einn flokkur hagnaðist á hernum
í hásæti sínu hann sat
þetta gerðist fyrir löngu síðan,en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.því þá var það þjóðinni í hag
menn fengu gefins fiskinn í sjónum
frá ráðherrum þessa lands
græðgin sig gróf að rótum hjartans
og gerði þar langann stans
þetta gerðist fyrir löngu síðan,en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.því þá var það þjóðinni í hag
menn stofnuðu flokk og fylktu liði
fram þjáðir sungu þeir
meðan foringinn slátraði milljónum manna
og moldin rauða veit meir
þetta gerðist fyrir löngu síðan,en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.því þá var það þjóðinni í hag
hálendið lögðu menn undir vatn
og lugu sig undir grjót
fossana tömdu í túrbínudans
yfir mosann flæddi fljót
þetta gerðist fyrir löngu síðan,en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.því þá var það þjóðinni í hag
ráðamönnum þeim lærðist það létt
að lögin væriu stálið
til að temja sauðsvartann almúgann
og fleygja sumum á bálið
þetta gerðist fyrir löngu síðan,en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.því þá var það þjóðinni í hag
og ef hlutirnir ennþá eru svona
þá eflaust er það svarið
af lögfróðum varið
ef það gerist ekki í dag,þá gerist það á morgun
því þá er það þjóðinni í hag,því þá er það þjóðinni í hag
því þá er það þjóðinni í hag,því þá er það þjóðinni í hag
Random Song Lyrics :
- the futuristic world of issues - alonelyness lyrics
- lego renaissance - sadface killer lyrics
- agent 00-heuchler - permanent marker lyrics
- orange - zayne (jpn) lyrics
- on the first day - lilrical lyrics
- energie - traian (xraian) lyrics
- alkohol - michajlov lyrics
- wet - goldfang lyrics
- deep cleanse! - dizzie the wizard lyrics
- like how you kiss and caress me - barrington levy lyrics