
hafið er ruslakista þeirra ríku - bubbi morthens lyrics
hafið er ruslakista þeirra ríku
regnskógunum bráðum eytt
návist dauðans þú finnur í fréttum
friður er orð sem þýðir ekki neitt
hungur er “hjálpum þeim” lagið
sem heiminum gat ekki breytt
kvölin er kúgun þeirra snauðu
sem var það eina sem kristur gat veitt
þegar sársaukinn syngur vögguljóð
og slekkur í börnum lífsins glóð
þá setjum við aura í bauk
þá setjum við aura í bauk
íslendingar eru bláeyg börn
sem brosandi saklaus sér leika
en amerísk börn hafa byssugreind
stálið dýrka og dauðann þau teika
rauði björninn er hrumur á hormónagjöf
á hækjum frekar illa til reika
kvölin er kúgun þeirra snauðu
sem kunna ekki þá list að feika
veröldin er heimur á heljarþröm
af heimsku og illsku er meira en nóg
samt trúi ég á máttinn og mannkynið
menningu listir og lífsins gró
vonin er heilög, henni vil ég planta
í hjarta þitt bróðir, já heilum skóg
um krist veit ég vissulega lítið
en ég veit fyrir hvað hann dó
Random Song Lyrics :
- scapricciatiello - claudio villa lyrics
- heaven (2023) - lim jae hyun lyrics
- amoeba - do nothing lyrics
- жив ещe - night vla lyrics
- lassée - marie-gold (qc) lyrics
- last man in tennessee - track45 lyrics
- plagueboys - grave pleasures lyrics
- epholile (bank notification) - emsa lyrics
- просто говорить (just talk) - бэха (beha) lyrics
- blood in my bathtub - xoleanr lyrics