
vals fyrir brynju - bubbi morthens lyrics
hálfnakin trén tapað hafa áttum
trúlega eiga þau bágt
í vindinum skilja að skjólið verði lítið
þegar skellur á norðanátt
þegar tjörnin frýs og frost bítur kinnar
og fjöllin klæðast hvítum feld
þá fá skautar sem héngu í kolsvartri kompu
að kyssa ísinn í kveld
ég bíð við iðnó undir ljósunum gulu
úti á svellinu fólkið sé
í kvöld við skulum skauta út á ísinn
og skera í hann b + b
láttu vindinn blítt um vangana strjúka
en varlega skaltu renna þér
það er vök við brúna, blásvört að líta
það brosir enginn sem oní fer
og endurnar horfa á heiminn kímnar
hlæja dátt og vagga sér
þeim er sama um ráðhús og rennandi búka
þær rýna eftir brauðinu hér
ég bíð við iðnó undir ljósunum gulu
úti á svellinu fólkið sé
í kvöld við skulum skauta út á ísinn
og skera í hann b + b
Random Song Lyrics :
- long live notti - lil swuzzy lyrics
- still - itzdiezel lyrics
- nike 2 - di3mbi lyrics
- manjericão - romeu bairos lyrics
- on sight - spook lyrics
- if it makes you happy - hamish hawk lyrics
- wellerman trap remix - the longest johns & fabian xavier lyrics
- deja vú - yung dupe lyrics
- the promise - versus (band) lyrics
- 2 cops - pleasure heavy device lyrics