
mescalin - egó (isl) lyrics
jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá
liggur dáleiðandi þokan glugga þínum á
himininn brotnar í ljóðum, nakið undur
kristaldýr í garðinum molnar í sundur
hálfluktum augum starði ég inn
rafmagnað ljósið strauk mína kinn
hvíslandi þögnin reis úr dvala í gær
bergmál vorsins í garðinum hennar grær
á heitum kvöldum hún kallar mig sinn vin
með augu eins og demanta, sem lýsa upp himininn
hún dansar fram á nætur í tunglsljósinu tryllt
gulli roðið hár hennar þyrlast úfið, villt
garðinn hennar vöktuðu s*x j*panskir vígamenn
sem aldrei fóru af verðinum, nema einn og einn í senn
ef þú vilt hana gleðja skaltu senda á morgun blóm
hún hefur stærra hjarta, dýpri augu en páfinn í róm
jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá
mun dáleiðandi þokan liggja glugga þínum á
augu þín sljóvga líkt og þú rýnir í svartan hyl
milli þín og drauma hennar liggur fingurbreytt bil
Random Song Lyrics :
- swag! - mariohet lyrics
- 1000-7 - soldlxve lyrics
- you and i 2 - isaac reinherz lyrics
- amor político - nucho lyrics
- this cannot wait (until tomorrow) - jon stancer lyrics
- ligesom lana - xcix records lyrics
- one last time - edge of paradise lyrics
- i'm jimmy jr. pesto - bob's burgers lyrics
- okay. - nzw (ita) lyrics
- już nie pytaj mnie czy wpieprzam - kubson sandwich lyrics