
rauðir draumar (fyrir kvikmyndina ”kuldi”) - elín hall lyrics
[erindi 1]
ég fann þig á fingraförum
með fjandann á fögrum vörum
og það vakti eitthvað volað í mér
en segðu mér óttastu hnykkinn
of mikið til að taka í gikkinn?
aldrei var munnur þinn svo næturkaldur
var ástin þín eitthvað meira en svartagaldur?
[viðlag]
ó ef ég lifi af annan dag
mun þá skugginn skríða af stað?
ó faðir hvíldu mitt kverkatak
og gjör mig ljós uns blóðið rennur kalt
[erindi 2]
myrkurhöndin klappar og klórar
er það hugur eða hugarórar?
það eru hliðar tvær á sama eyri
svo ég kyngi eitri og vona að það þig deyði
[viðlag]
ó ef ég lifi af annan dag
mun þá skugginn skríða af stað?
ó faðir hvíldu mitt kverkatak
og gjör mig ljós uns blóðið rennur kalt
[outro]
rauðir draumar, allt sem eftir er
rauðir draugar, útlínur af þér
rauðir draumar, allt sem eftir er
rauðir draugar, útlínur af þér…
sjáðu tunglið grætur
þessar kvíðanætur
unga ástin mín
sjáðu tunglið grætur
þessar kvíðanætur
ég skal bíða þín…
Random Song Lyrics :
- latch - reece bibby lyrics
- letter to my ex - chris sails lyrics
- goddess - cherokee (r&b) lyrics
- memories - lylbooo lyrics
- full fyr - dumdum boys lyrics
- ode - bknott lyrics
- nếu anh cần tôi - trang lyrics
- difficult love - lovely peaches lyrics
- naruto's ninja way - nonelikejoshua lyrics
- ruff rider ft 50 ft keelo ft ruff rider - ruff rider lyrics