
hvíslar mér hlynur - jón ásgeirsson lyrics
Loading...
hvíslar mér hlynur
hár í skógi
sögu sviplegri
,,óx mér við hlið
ei fyrir löngu
burkni blaðmjúkur
drakk hann að morgni
mungát nætur
geisla um hádag heiðan;
hugði hann sól
og sumarástir
vara ævi alla
kom hinn haustkalda
hélugríma
skalf þá veikstilka vinur:
,,svikið hefur mig
sól í tryggðum
nú mun ég bana bíða.“
brosti ég
að hans barnslyndi
mundi ég eigin æsku
falla munu blöð þín
bleik til jarðar
en víst mun stofn þinn standa
leið nótt
lýsti nýr dagur
huldi héla rjóður
en vininn minn
veikstilka
sá ég aldrei aftur.“
drúpir dimmviður
dökku höfði
dagur er dauða nær
hrynja laufatár
litarvana
köldum af kvistsaugum
Random Song Lyrics :
- yet another hinch diatribe - tism lyrics
- 1960 - criatension lyrics
- 4 the road - dwn2earth lyrics
- panokset paatoksen - ryhti lyrics
- i don't wanna know - leyla blue lyrics
- für alle, die - k' lee lyrics
- provocación - raphael lyrics
- bloom - matt dean & whtevr lyrics
- our hope - paul onufrey lyrics
- kaiken mestari - spekti lyrics