
algleymi - misþyrming lyrics
í stormi gekk ég sem áður
barðist gegn óbeislandi öflum
en ég hélt samt ótrauður áfram
jú, endanum var ekki náð
það virtist eigi innan seilingar
að ég ætti erindi sem erfiði
og hljóp það með mig í gönur
hve nóttin varð alltaf meiri
moldugan veginn tróð ég fast
og reyndi að horfa fram á við
en skyggnið reyndist sem áður
gjörsamlega til einskis nýtt
þá, á krossgötum mætti ég honum
þeim sem ég taldi mig best þekkja
en hann sem þar stóð gegnt mér
reyndist ekkert vera nema spegilmynd
hann fylgdi mér áfram um tíma
yfir torfærar hæðir og hóla
uns við stóðum loks við lokamarkið:
við dyr hallar algleymis
nú hafði nóttin náð sínu hámarki
og ég stóð á stalli mínum
en eigi í ljóma þeirrar gleði sem ég vænti
heldur berstrípaður og allslaus
Random Song Lyrics :
- sorry - toni braxton lyrics
- pisces lullaby - persephone hope lyrics
- nio dagar, nio nätter - månegarm lyrics
- ease (lontalius remix) - troye sivan lyrics
- digitus medius - discrepancies lyrics
- wanna dance with you - fern tan lyrics
- when love and hate collide (piano version) - def leppard lyrics
- my emptiness - cold snap lyrics
- twoja reputacja - lady pank lyrics
- violeta 2 - lyan lyrics