
ellismellur - moses hightower lyrics
að loknum lestri fréttanna
litgreini sokka og sameina:
einn, tveir, áfram gakk!
fylgist með fótabúnaði
í hans náttúrulega umhverfi
og sé að þeim fjölgar, stöku sokkunum
í grámann grannaskinnin falla eins og flís við rass
fljúga ansi oft á útvarp saga class
og fá sér af stút
og þegar öllu þeirra bauki er á botninn hvolft
blasir við að ekki gerist alltof oft
að þau kíki eitthvert út
og ég spyr mig:
er ekki mál að linni?
er ekki kominn tími til að skora gufuna á hólm?
og sjá:
vatteruð kona í kvartbuxum
(hjarta, ertu fransbrauð?)
ég kikna í göngulimunum!
(fýsn, ertu hordauð?)
ég sagði: „kannski væri þjóðráð að við kíktum í
kaffibolla og mögulega kruðerí
og rifjuðum upp gengna slóð?“
hún sagði: „á laugardögum líta barnabörnin við
á mánudaginn læt ég skipta um mjaðmarlið
en annars er ég bara góð.“
er ekki kominn tími til að tíminn komi til?
Random Song Lyrics :
- cleane - criolo & tropkillaz lyrics
- little star - nara anumila lyrics
- mc'drive - livaï (fra) lyrics
- somebody else (grandmaster x remix) - light of destiny lyrics
- fugazi - eko fresh lyrics
- hands in the air - candiace lyrics
- wrong seaside - rad abe lyrics
- wasn't a waste - wvlfsn lyrics
- autre chose - apophis (qc) lyrics
- baldr - tentation lyrics