
framkvæmdir - moses hightower lyrics
Loading...
þvæ mér í þaula
zen í súldarklefanum
minni þrifnað má nú sjá
sest svo og maula
jógúrt bætta örverum
sem mig elska innanfrá
hvað er það sem bankar og ber?
eru framkvæmdir hér?
hvað er það sem bankar og ber?
er það hjartað í mér?
hér er einhver í framkvæmdum
en ég veit ekki hver
sýð ég og sötra
seyði úr jurtum visnuðum
öllum sigldum langan veg
nærumhverfið nötrar
ja, annaðhvort það eða ég
svo tek ég einn fyrir syndina, einn fyrir mig
einn fyrir hádegi, einn fyrir þig
einn fyrir virka, tvo fyrir tröll
einn fyrir jesú og fyrir okkur öll, já…
hvað er það sem bankar og ber?
eru framkvæmdir hér?
hvað er það sem bankar og ber?
er það hjartað í mér?
hér er einhver í framkvæmdum
en ég veit ekki hver
Random Song Lyrics :
- te llevo en mi corazón - caibo lyrics
- como perder - utopians lyrics
- hedgehog's dilemma - nineteen ninety four lyrics
- kiss and rewind - friendly fires lyrics
- young wizxrd - lil diamond iii lyrics
- trabajo - pepito rella lyrics
- the sweet spot - choice (soundcloud) lyrics
- uncertainty - strikebreaker lyrics
- believe - kalafina lyrics
- 夢 - yume - vitor brauer lyrics