
margt á manninn lagt - moses hightower lyrics
varla hefur neinum neitt
náð að verða eins og mér
jafn ákaflega þungt og þreytt
og þessi litla vísa hér
ambögur og ofstuðlar
alveg ná mér upp í kok
froðusnakk og fánýtt sprok
frussast úr mér allsstaðar
það er margt satt ósagt enn
og margt á manninn lagt
ójá
dagurinn í duftið laut
og draumurinn um skrifað blað
bragarsmíð er bannsett þraut
bölva mátt þér upp á það
setningarnar sitt á hvað
synda um á tundri og tjá
það er margt satt ósagt enn
og margt á manninn lagt
ójá
svo kemur kvöldsólin
hringi hnitar hnötturinn um hana
hennar mildi er margsönnuð;
hún er mjög vel hönnuð
aumur, tregur, eirðarlaus
aðframkominn, lafmóður
innri verund öll á haus
illur, beygður, morðóður
eymd og skömm og argaþras
ólm mig vilja fletta og flá
það er margt satt ósagt enn
og margt á manninn lagt
ójá
Random Song Lyrics :
- burn - crobot lyrics
- acelero - ruvnvn lyrics
- muhammad ali - keed x junior high x pacha man x super ed lyrics
- no chance - eskeerdo lyrics
- gelato - neutro shorty lyrics
- desperado (mk remix) - rihanna lyrics
- roli am arm - l.e.q lyrics
- lovin' - pnb rock lyrics
- on my mind - the walshie 365 lyrics
- newspaper man - africankidd lyrics