
þetta hjarta - moses hightower lyrics
Loading...
vesen!
þunnu hljóði þegir síminn
dó hann, og þú einhversstaðar svekkt?
ný boð, guðsélof!
núna nötrar síminn
– taugin sem að tengir okkur strekkt
það er myrkvað hús
þetta hjarta
ef við römbum á
rafmagnstöflu má
ljósum starta
vesen!
við deilum hektara
en hittumst eftir dúk og disk
því hvernig lít ég út og hvar er ég?
þú þekkir mig af myndum, en þar er ég
á árbakkanum, umfaðmandi fisk
vesen!
kvöldið líður, klárast glösin
kvikna ljós, og vertar ræskja sig
oft fílast svona fundir svo furðulega
en ekki þessi hér
viltu meta og vega
að hittast aftur?
það myndi gleðja mig
það er myrkvað hús
þetta hjarta
ef við römbum á
rafmagnstöflu má
ljósum starta
það er myrkvað hús
þetta hjarta
ef við römbum á
rafmagnstöflu má
ljósum starta
Random Song Lyrics :
- flex - costa lyrics
- hold tick my billion - cheeef lyrics
- purpleskies - hkfiftyone lyrics
- sante mi ki nah - ande andee lyrics
- snitch - dennis dies das lyrics
- love jones - weldon irvine lyrics
- rooftop talks - mile 57 lyrics
- ámame - ricardo montaner lyrics
- come together - boulevard lyrics
- зона комфорта (comfort zone) - idan lyrics