lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

skólarapp - sara dís hjaltested & þorvaldur davíð kristjánsson lyrics

Loading...

[intro: kór]
rapp
rapp
rapp
rapp

[verse: sara dís, þorvaldur davíð]
hér í skólanum er skemmtilegt að vera
það er skrambi margt sem hér er hægt að gera
það er ýkt, það er kúl og algjört æði
það er ýkt er við röppum landafræði

[bridge: kór]
öll í einu
öll í einu

[verse: sara dís, þorvaldur davíð]
ef við stígum jafnt og þétt verður stærðfræðin svo létt
bæði móðurmál og saga verða æði alla daga
ef við klöppum saman höndum
á höfðinu við stöndum
verðum töffarar í framan við að taka sporið saman
syngjum búmm tja, a búmm búmm tja

[chorus: kór]
búmm tja a búmm búmm tja
rapp, skólarapp
inn’í skólastofu heyrast óp og hlátur og klapp
rapp, já skólarapp
nú er hörkufjör því kennarinn á klósettið skrapp
[chorus: sara dís, þorvaldur davíð]
við erum öll að reyna að rappa
þessi rosa krakkastappa
við höfum langt á milli lappa
gerum limi alla slappa

[chorus: kór]
rapp, skólarapp
nú er tími til að rappa já og það var mikið happ

[verse: sara dís]
hvað er tvisvar sinnum fjórir?
hvað er þrisvar þrír?
hvort er skólastjórinn nagdýr eða jórt*rdýr?

[verse: þorvaldur davíð]
veistu hver sagði „hlíðin er svo fögur“?
veistu hvað gerðist ’44?

[bridge: kór]
hvað er langt á húsavík? hvað er óakveðinn greinir?
veistu að ingólfur og hjörleifur þeir komu ekki einir?

[bridge: sara dís]
suður í afríku eru ljón en í kína eru grjón
hvaða er vatnajökull hár?
sýndu mér hvað þú ert klár
og syngdu búmm tja, a búmm búmm tja
[chorus: kór]
búmm tja, a búmm búmm tja
rapp, skólarapp
inn’í skólastofu heyrast óp og hlátur og klapp
rapp, já skólarapp
nú er hörkufjör því kennarinn á klósettið skrapp

[chorus: sara dís, þorvaldur davíð]
við erum öll að reyna að rappa
þessi rosa krakkastappa
við höfum langt á milli lappa
gerum limi alla slappa

[chorus: kór]
rapp, skólarapp
nú er tími til að rappa já og það var mikið happ

[verse: sara dí]
veist’að kýrnar hafa laka, vinstur, vömb og kepp?
hvar á landinu má finna þykkvarbæjarhrepp?
[verse: þorvaldur davíð]
veistu hvar höfuðborgin heitir róm?
veistu hvar fólkið gengur ekki í skóm?

[bridge: kór]
hvað er körfublómaætt?
hver var það sem slóst við gretti?
hvað er stærst og breiðast, hæst og dýpst og lengst á þessum hnetti?
[verse: sara dís]
hvað er fjórum sinnum sjö?
x y z þ æ ö
svona lærum við og lærum
skil á lífsins fyrirbærum
bara búmm tja, a búmm búmm tja

[chorus: kór]
búmm tja, a búmm búmm tja
rapp, skólarapp
inn’í skólastofu heyrast óp og hlátur og klapp
rapp, já skólarapp
nú er hörkufjör því kennarinn á klósettið skrapp

[chorus: sara dís, þorvaldur davíð]
við erum öll að reyna að rappa
þessi rosa krakkastappa
við höfum langt á milli lappa
gerum limi alla slappa

[outro]
rapp, skólarapp
nú er tími till að rappa, já og það var mikið happ!

Random Song Lyrics :

Popular

Loading...