
vor - seiðlæti lyrics
vör
sem öndun lífsins, birtist hún öllu
launhelgar ritar, hafi ég spurt
létt eins og fiðrið, kelar hún lífið
sem fjöður visku, veitir hún svör
allt hún mér opnar, hafi ég hugrekki
til þess að leita, sjá það sem er
djúpt í því dulda, rennum við saman
æðarnar þennjast, brennandi þrá
svörin ég sæki, í uppsprettu mína
í hennar vilja, svar mitt er
hún þeytir mér upp, í glaðlyndi lífsins
leysist ég upp, allar áttir í
létt og fljótandi, svíf ég áfram
í öllum þeim heimum, er tilheyri ég
samtímis allstaðar, spurningum er svarað
skýrleiki umfangsinns, ótrúlegur er
að deilast í dulda, dali drauma
þar dropi daggar, speglar mynd
mörg er viskan, í vitleysu falin
af sjálfri mér oft, ég opna hlátur
hún opnar mér sýn, á sameiningu
andstæðir pólar, verða ein heild
engar eru andstæður, í einum heimi
lífið frjósamt, samkennd er
þar vil ég dvelja, löngum stundum
hvort sem sú stund, varðar mig еða þig
Random Song Lyrics :
- for now - kwon jinah love sam kim lyrics
- ahtaj lek - rashed al majid lyrics
- young forever - jun. k lyrics
- buktikan padaku - rinni wulandari feat. jevin julian lyrics
- proverbs 12 - bible lyrics
- get up - nick grant lyrics
- move - saint motel lyrics
- baby blues - pendulum swing lyrics
- attackieren - bonez mc & raf camora lyrics
- window - mozartrick lyrics