
fjöll í austri - sigur rós lyrics
Loading...
fjöll í austri f*gurblá
freista dalabarnsins
ungur fylgir æskuþrá
upp til jökulhjarnsins
sveimað heimahögum frá
hef ég vors á degi
víða stíða þræddi þá
þunga hraunavegi
heiðin breiða hugumkær
hvetur viljann ofar
leiðin seiðir, fráum fær
fögrum sýnum lofar
gangan sækist öruggt enn
urðarróti móti
einatt hlutu heiðamenn
höggvinn fót á grjóti
hver, sem ofar á að ná
einskis metið getur
þótt í fangið fái sá
fjúk og hretið betur
anda heitum yndi nóg
unaðsreitir geyma
seinna leitar þráin þó
þinna sveita heima
Random Song Lyrics :
- aynı - harun adil lyrics
- sommergefühle - traider lyrics
- shooting players - geeky parodies lyrics
- lutsch mein schwanz (reggae cover) - greeen lyrics
- level up - rexx life raj lyrics
- freespirit (projectbland demo) - kuangu lyrics
- the animist - shayde lyrics
- again - rvn lyrics
- pretty boy (charlie heat version) - charlie heat lyrics
- astral plane - shamir lyrics