
23 - una torfa lyrics
[verse 1]
ég labbaði til þín
ég ætlaði ekki að gera það
en í dag er ég týnd
ég get ekki hringt og spurt
og ég þekki þig ekki nóg
til að vita
[chorus]
svo ég stend fyrir utan
reyni að skilja
stend fyrir utan og spyr mig
af hverju
[post*chorus]
ég labbaði til þín
því ég ætlaði ekki að gera það
en í dag er ég týnd
[verse 2]
ég sat á bekk og beið
ég gat fylgst með tímanum
en hann vissi ekkert hvernig mér leið
að bíða er alltaf eins
ef þú bíður nógu lengi
finnurðu að það er ekki til neins
[chorus]
svo ég stend upp á fætur
stelpa í stígvélum
stendur og grætur
í búðinni með blómunum
hættir svo við, snýr sér við
labbar aftur heim
[verse 3]
því ég á það soldið til
að segjast vera viss
en vita samt ekkert hvað ég vil
svo ég keypti ekki blóm
því mér fannst það vera of mikið
og samt á sama tíma ekki nóg
[chorus]
svo ég skrifa þrjár blaðsíður
reyni að útskýra
tuttugu og þrjár línur
síðustu bergmála
[post*chorus]
ég er ekki viss
þú átt skilið að vera með einhverjum sem er viss
ég er ekki viss
þú átt skilið að vera með einhverjum sem er viss
ég er ekki viss
þú átt skilið að vera með einhverjum sem er viss
Random Song Lyrics :
- manic mind (ft. mr. ill) - rappin' ron lyrics
- lionel - 7heos lyrics
- 사랑이 뭐길래 (what is love) - 피기돌스 (piggy dolls) lyrics
- los días felices - ella es tan cargosa lyrics
- mama - decora lyrics
- måneskin - coraline (türkçe çeviri) - måneskin lyrics
- capital bra - zwei stiche [prod. by sero produktion] - alandremix lyrics
- in this wonderland - satin (band) lyrics
- 0 (zero) son of 8 club mix radio edit - lmyk lyrics
- rule the world - the wanted lyrics