lirik lagu birkisálin – ari ma & muted
ég er birkisálin, vefari vinda
tungumálin og sefari blindra
ég er byrgisbúi og miðnætursólin gyllir mig eplarauðan
ég hlýði á alvísar fuglasveitir
er perluglit mistursins ruglar og veitir
skóginum svala og sumargræn blöðin
blotna og skapa fiðrildaböðin
ég er ástblíður andi og um mig flæðir alsælu orka augnabliksins
ég er endurspeglun tjarnar í augum arnar sem flýgur um upphiminn
ég er upplifun barna án varna
við komandi blekkingum fullorðinna
sem þó voru blekktir sjálfir
og allt óafvitandi
ég er afvitandi meðvitund
meðvituð um meðvitund
ég er könguló sem veiðir fugla í netin
af guðum var ég getinn
af guðum verð ég etinn
ég er
ég dvel djúpt inni í hjartahellinum
og dansa til eilífðarnóns
ég fæðist og dey samtímis
ég er brennandi hjarta sunnu
ég er alsgnægtar brunnur ástarinnar
ég er það sem ekki má tala um – í virðulegum samkomum
ég er alveran. alveran er ég
ég veld sjálfum mér sársauka í þessum klikkaða feluleik við sjálfan mig
ég fer í algleymis stríð
en stundum man brotabrot af mér að þetta sé bara leikur og brotið hvíslar að sér: fundinn
og brotið sameinast mér líkt og ekkert hafi í skorist
ég er kjarni alheimsins
ég er blaktandi strá
ég er munkur vaktandi þrá
frjósemisgyðjan er móður mín
ég er berserkur sem blótar goðin með fórnarblóð í kinnskóginum
ég er ættbálkur horfinna alda og við dönsum við eldinn og drekkum anda skógarins er svefngaman álfanna tekur við
og andinn fer með okkur í ferðalag um sjálf okkur:
ég er af því að við erum
við erum af því að ég er
ég er alvitur alveran almáttug alandi allt í almyrkva alheimsins
hvað ert þú?
lirik lagu lainnya :
- kumpulan lirik lagu king ace dgeneral › lirik lagu deadman (feat. amg vic) – king ace d’general
- kumpulan lirik lagu sarah kabbani › lirik lagu deja vu – sarah kabbani
- kumpulan lirik lagu ane brun › lirik lagu all is soft inside (from nrk haik for aurora, 2019) – ane brun
- kumpulan lirik lagu miyagi эндшпиль › lirik lagu freeman (wertus remix) – miyagi & эндшпиль
- kumpulan lirik lagu pak › lirik lagu aku sing berjuang kowe sing disayang (feat. rph, happy asmara, ndarboy genk & pendhoza) – pak
- kumpulan lirik lagu kaaris › lirik lagu valhalla – kaaris
- kumpulan lirik lagu skillet › lirik lagu sick and empty – skillet
- kumpulan lirik lagu blizzard hunter › lirik lagu queen of the reich (bonus track) – blizzard hunter
- kumpulan lirik lagu tom macdonald › lirik lagu move – tom macdonald
- kumpulan lirik lagu emergency flask › lirik lagu space [feat. desvelada] [remix] – emergency flask