lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu geri ekki greinarmun – ari ma & muted

Loading...

[vers 1: ari ma]

finn mig sem ekkert en skynja mig sem allt
birkið springur út þó að vorið það sé kalt
vindarnir blása og rigningin er blíð
mosinn verður grænn og lautin dropafríð
sólin lætur sjá sig eftir vætusaman dag
álfarnir í steinunum þeir vinna mér í hag
þeir vísa mér á þrestina sem sömdu lífsins lag
það hljómar inni’ í hjartanu með ævintýrabrag
með áherslum á atkvæðum sem kippa mér í lag
hugfanginn hlusta ég, það hefur hugann hátt
tungurnar í kvæðinu þær hafa mikinn mátt
þær blístra óttalausar og taka allt í sátt
flytja mig í gegnum sína orðalausu gátt
ég enda inni’ í hjartanu með ekkert nema slátt
allt er horfið, allt er horfið, allt sem ég hef átt
það eina sem er eftir er að taka andardrátt
birkiþrestir fljúga um og hlægja að mér dátt
margvitrir álfarnir mæla frekar fátt
nafnið mitt og búkurinn, heilahvelið grátt
beinin mín og blóðið mitt, allt þetta er smátt
sumarkvöldið eilífa ótrúlega blátt
betra’ en það er fátt
betra’ en það er fátt
sumarkvöldið eilífa ævintýrablátt
þú kemur til mín brátt
þú kemur til mín brátt

[viðlag]

hamingjusamur að ástæðulausu
að vera til það er nóg
hugleiðslugamanið fyllir minn haus og
líkaminn baðast í ró

[vers 2: ari ma]

með einbeitingu beislaði ég hugann minn í taum
ég hlusta ekki’ á egóið, gef því engan gaum
beini orku inná við, finn meðvitundarstraum
fer á bólakaf og vakna upp við draum
ég finn að tími hverfur, mitt innra rými verður
alveg óútskýranlegt í orðum
ég reyni’ að halda tungunni í skorðum
ég er ekki þessi líkami, ekki þessi hugur
ekki þessar hugsanir
sem fljúga’ um líkt og flugur
ég er vitnið að þessu öllu saman hérna inni
geri ekki greinarmun á þinni
meðvitund og minni
þetta’ er allt sami vefurinn
lambið og refurinn
plánetan og geimurinn
við erum alheimurinn
alvitur alveran í alvörunni leik
skiptir sér í búta svo hún verði smeyk
því ef hún myndi alltaf vita að hún væri eitt
myndi henni leiðast og gera ekki neitt
svona er kenningin
hugleiðslu menningin
hjarta-orku stemmningin
sameinaða þrenningin
allt sami hugurinn, líkaminn og sálin
í þungamiðju alheimsins brenna hjarta bálin
brenna inní dýrunum, brenna upp á fjöllum
brenna inní þér og mér, brenna inní öllum

[viðlag]

hamingjusamur að ástæðulausu
að vera til það er nóg
hugleiðslugamanið fyllir minn haus og
líkaminn baðast í ró

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...