lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu allt fyrir mig – baggalútur

Loading...

[verse 1]
ég leitað hafði langa hríð
um landið þvert í erg og gríð
að konu við mitt hæfi
raunar alla ævi

en það bar engan árangur
ég var örmagna og sársvangur
ég kominn var að þrotum
og að niðurlotum
þá birtist hún með brúðarslör
og bros á vör
hún lofaði að annast mig
ef ég gengi að eiga sig

[chorus]
hún þurrkar af og þrífur
er ég þreyttur er og stífur
allt fyrir mig
hún ræstir og hún þvær
hún ryksugar og hlær
allt fyrir mig

[verse 2]
við giftum okkur eins og skot
við innréttuðum lítið kot
og hlóðum niður börnum
í nokkrum góðum törnum

hún verður ekki af þrifum þreytt
nú þarf ég ekki að gera neitt
femenískar beljur
súpa sjálfsagt hveljur

því konum ber að bölva því
að baka og stoppa í
en ástin mín hún elskar það
og að láta renna í bað
[chorus]
hún þurrkar af og þrífur
er ég þreyttur er og stífur
allt fyrir mig
hún ræstir og hún þvær
hún ryksugar og hlær
allt fyrir mig

[instrumental bridge]

[chorus]
hún þurrkar af og þrífur
er ég þreyttur er og stífur
allt fyrir mig
hún skúrar og hún þvær
hún skrúbbar mínar tær
allt fyrir mig
hún þurrkar af og þrífur
er ég þreyttur er og stífur
allt fyrir mig
hún strýkur úr mér stressið
og hún straujar á mig dressið
allt fyrir mig
allt fyrir mig

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...