lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu sagan af jesúsi – baggalútur

Loading...

það var um þetta leyti
þarna suðurfrá í miðausturlöndum
þar var ungt par á ferli
konan kasólétt, þeim var vandi á höndum
öll mótelin voru upptekin
og yfirbókuð gistiheimilin
og þannig byrjaði sagan af því
þegar hann jesús kom heiminn í

þau létu fyrirberast
inni í fjárhúsi með ösnum og kindum
en það var ósköp kósí
ekki ósvipað gömlum biblíumyndum
þar kom í heiminn mannkyns von
inn kunni jesús kr. jósepsson
hann endaði í jötunni
beint undir betlehemsstjörnunni
og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann jesús kom heiminn í

hallelúja
og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann jesús kom heiminn í

svo ráku inn nefið vitringar
sem fyrir rælni voru staddir þar
þeir óðu inn með gras og gull
og eitthvað óríental jurtasull
ó, jósep sendi sms
ó, maría var bara furðu hress
ó, barnið lá og snuðið saug
með bros á vör og soldinn geislabaug
og þannig endar nú sagan af því
þegar hann jesús kom heiminn í
já, þannig hljómar nú sagan af því
þеgar hann sússi kom heiminn í
þið ráðið sjálf hvort þið trúið því
amen

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...