lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu gullfalleg útgáfa af forljótum náunga – bróðir svartúlfs

Loading...

hvernig get ég annað en glott?
það er stelpan sem að kyssir mig og áfengið sem fyllir mig
og allt það sem að hjálpar við að myrða mig en er bara svo gott
litlir sólageislar sem að hafa bölæði á brott
svo hvernig get ég annað en glott?
það er einveran að nóttu til með blekinu og bókinni
þar sem ég æli af öllu afli því sem fyllir póetískt kok
snotur orðin sem að hafa mig ítrekað á loft
svo hvernig get ég annað en glott?
það er óútreiknalega óvissan sem ég vil ómögulega missa af
þó hún eigi það til að flytja mig niður á botn
gefur mér ástæðu til þess að grípa grimmur í vopn
svo hvernig get ég annað en glott?
það eru óslítanleg handaböndin, ótvíræðu hlátrasköllin
vandamenn og vandamálamenn með misóhreint pokah-rn
moðerfokkerar sem með mér fremja blóðug tímamorð
svo hvernig get ég annað en glott?
svo hvernig get ég annað en glott?
svo hvernig get ég annað en glott?…
ég get það engan veginn

mér þykir prýðilegt að gera mér glaðan dag, daglega
sama hvað hnýsin h-rnaugun hafa segja um mig
ég er minn eigin herra, ég er mín eigin frú
núið er minn leikvöllur og ég er konungur í sandkastala
ykkur er öllum boðið á dansleik þar í kvöld
munið dresscode-ið: verið nakin..
ég er gullfalleg útgáfa af forljótum náunga
mín takmörk eru heimskuleg og skila mér alls engu
nema einskis nýtri hamingju sem hefur ekki neitt nema persónulegt gildi
en ég er mettur
gagnslaus í risastórum heimi
en ég er mettur
betur settur dauður en á lífi
en ég er mettur
utanvelta væsk!ll sem vill ekki hl-sta á alvöruna þegar að hún tekur til máls
en ég er mettur
og þessvegna get ég ómögulega þurrkað glottið burt, það er komið til að vera á mínu smetti

þakka þér kærlega fyrir að gefa mér augað
þar sem þú fullorðin sast en ég er orðinn svo fullur
stígandi vangadans við drauga
flýjandi áfanga sem nú blasir við eins og dauðann
en augnaráð þitt laug ey
og raunin er sú að raunin er sjaldnast auðgleymd
ég vaknaði næsta morgun, heyrnalaus, mállaus og blindur allsnakinn
áttaði mig á því að áttavitarnir mínir þeir voru falsanir
það er allt farið fjandans til, ég sit eftir einn og örvingla
get ekki hangið neinstaðar, það er búið að skera á snöruna..
mér hefur aldrei fundist ég vera eins lifandi á æfinni
það hljómar vel að segja þetta. en tilfinningin hræðir mig
ég gretti mig því hvert andartak er sem terta á leið í smettið mitt
hver týmir að bjóða mér drykk sem fellir, drykk sem gæti drepið mig?
á leikvellinum eru ekki lengur opnir armar
og skrímslið inní skápnum sagði bless
í speglinum er gaur sem er vonandi einhver annar
stend ég hér eða handan þessa glers?

svo hvernig get ég annað en glott?
það er stelpan sem að kyssir mig
og áfengið sem fyllir mig
og allt það sem að hjálpar við að myrða mig en er bara svo gott
litlir sólageislar sem að hafa bölæði á brott
svo hvernig get ég annað en glott?
það er einveran að nóttu til með blekinu og bókinni
þar sem ég æli af öllu afli því sem fyllir póetískt kok
snotur orðin sem að hafa mig ýtrekað á loft
svo hvernig get ég annað en glott?
svo hvernig get ég annað en glott?
svo hvernig get ég annað en glott?

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...