lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu vinir – elín hall

Loading...

fyrirgefðu ef ég var stutt í spuna
held ég hafi ekki heyrt spurninguna
ég á það smá til er ég horfi á þig
þú ert alveg hættur að hringja í mig
þú þarft ekki að afsaka, ég skil þig
þú skuldar mér ekki neitt
þú segist vilja vera vinur minn
en allt sem ég heyri er
þú vilt ekki út en þorir ekki inn

því eru það vinir sem að
kasta alltaf kveðjum á varirnar?
vorum við bara vinir
að segja hvert öðru allt?
varst þú bara vinur þegar
þú horfðir á mig bursta tennurnar?
þegar þú hristir hausinn
og kallaðir mig fallega
varstu ekki að meina það?

hvenær varð lífið þitt svo takmarkað?
hver var það sem braut í þér hjartað?
var hún kannski þarna í huga þér með mér?
manstu hvað þú barðist fyrir mér
þegar ég var tvístígandi?
staðar namst um leið og ég tók skref
eins og það versta sem ég gæti gert þér
væri að falla fyrir þér

því eru það vinir sem að
kasta alltaf kvеðjum á varirnar….

vorum við vinir þegar
við keyrðum um að skoða stjörnurnar?
þegar þú baðst mig um að spila
fyrir þig bítlana?
vorum við vinir þеgar
þú horfðir á mig bursta tennurnar?
þegar þú hristir hausinn
og kallaðir mig fallega
varstu ekki að meina það?

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...