lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu saga úr sveitinni – hjálmar

Loading...

kveð ég um konu og mann
og konan hún eldaði og spann
en karl hann var fróður
um fornaldargróður
kveð ég um hana og hann

og bóndadóttir hún dró
einn dáyndis fiskling úr sjó
hún sett’ ann í pottinn
og sótti svo þvottinn
loks sagði hún nú er það nóg

og kötturinn meyvant fann mús
í meisnum og bauð henni dús
þau ræddu um fólsku
frakka á pólsku
og dreyptu á norðlensk-m djús

og kindin hún kveinaði hátt
svo klerkur hann brotnaði í smátt
en þeir límdu hann saman
og þótti það gaman
honum fannst gamanið grátt

þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkindina og heilaga jómfrú

í haga var búkolla á beit
og brennandi vorsólin skeit
og hundurinn eltist
við hænuna og geltist
í haga var búkolla og hún beit

og nautið hét hálfdán og hló
að húsfreyju þegar hún dó
því þótti ekki klerkur
þesslega merkur
en nautið það hét hálfdán og hló

nei nautið það hét hálfdán og hlóð
á húsfreyju lof er hún stóð
upp út í hlöðu
nær hulin í töðu
úr vitunum vætlaði blóð

og bóndasonurinn sá
einn sjórekinn mannsfót og brá
á flótta hann lagði
en fóturinn sagði
sonur minn segðu ekki frá

þau lifðu í sátt og samlyndi og trú
á sauðkinda og heilaga jómfrú

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...