lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu til þín – hjálmar

Loading...

hvort fann ég, þig eða tímann
þarflaust að líma’nn
og ég held ég hafi aldrei áður komið mér í slíkan lás

því ég ann þér? megi þér glíman
giskin við símann
verða hugrenningi í góðu eða hljóði svo þú verðir hás

en ég veit að þó við séum eins á litinn
er veröld okkar sundurslitin
á baki þínu stendur að þú búist til að kveðja mig
og ég veit að hjarta mitt það er í miðið
verulega sárt og sviðið
og klofið eins og kilja
þó ég kannski myndi vilja
að mér láist að skilja þig

hvort finn ég, þig eða tíma
til þess að glíma
við heimskulegar aðstæður sem enda þar til verð ég lens

hef ég nær þér nokkru sinn verið?
og hvað sem þér gerið
þá er höfuðið að veði þótt þú fáir alltaf annan séns

en ég veit að þó við séum eins á litinn
er veröld okkar sundurslitin
á baki þínu stendur að þú búist til að kveðja mig
og ég veit að ennþá mun ég þurfa að bíða
strjúka enni mitt og svíða
og þó að ég sé hjálmur
þá er þessi litli sálmur alveg sérstaklega til þín

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...