lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu ekkert breytir því – sálin hans jóns míns

Loading...

ef ég ætti
fleiri stundir, fleiri mínútur
fleiri orð, fleiri nætur
fyrir þig
þó að ævin
geymi óteljandi sekúndur
þá er oft eins og tíminn svíkji mig

samt er ekkert sem að breytir því
samt er ekkert sem að breytir því
hversu heitt þetta hjarta þráir þig
ef ég hefði
önnur færi, önnur augnablik
önnur ráð, aðra kosti
handa þér
oft á tíðum
á ég ekki nógu hægt um vik
til að sá eða gef´af sjálfum mér

samt er ekkert sem að breytir því
samt er ekkert sem að breytir því
hversu heitt þetta hjarta þráir þig
það er ekkert sem að breytir því
—ekkert annað sem mig þyrstir í
þessi sál, þessi hugur þráir þig

þó að myrkrið virðist endalaust
—vetur, sumar, vor og haust
skaltu minnast þess að lífið er
ýmist fjara eða flóð

það er ekkert sem að breytir því
—ekkert annað sem mig þyrstir í
þessi sál, þessi hugur þráir þig

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...