lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu ormstunga – sinmara

Loading...

ævaforn, eilífur
á botni hylsins hírist
í örvæntingu steypist í gin glötunar
bundinn í hlekki eilífrar endurfæðingar

ormstunga

snákur skríður
um sporbaug
án afláts
óravíddir rekur

heltekinn af vilja
hungrið sverfir
hali höfði fylgir
hátt uppi sveimar

ormstunga

hreistur sindrar
fast um sig hlykkjast
föl naðra
sporð sinn nagar

ormstunga

gnístan skoltsins glymur
í blindri heift
botnlaust tómið kallar
gin drekans opnast
heiminum að granda

stjörnur sortna
strengir rofna
hryggur klofnar
eilífðin afmyndast

í himingeimsins sæ
endurspeglast skin dauðra stjarna
bjagað bergmál látinna heima
ómar um tóma sali
afmyndað hræ himinhvolfanna
gapir hreyfingarlaust

af eitri ertu kominn
að eitri muntu aftur verða
upp risinn úr köldum undirheimsins brunni
afskræmdur sekkur í hafrótsins djúp

ævaforn, eilífur
á botni hylsins hírist
í örvæntingu steypist í gin glötunar
bundinn í hlekki eilífrar endurfæðingar

afmyndað hræ himinhvolfanna
gapir hreyfingarlaust
botnlaust tómið kallar

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...