lirik lagu valhöll – skalmold
hetja er fallin, höndin sár,
höfuðið klofið að strjúpa.
gróa þar síðan baldursbrár,
berjalyng kroppar rjúpa.
valkyrjur sækja vígamenn,
völlurinn ataður blóði.
einherja mun þig óðinn senn
útnefna, vinurinn góði.
hafinn á loft og traust er tak,
tekinn án nokkurra refja.
vergmálar víða vopnaskak,
við megum alls ekki tefja.
sannað sig núna hefur hann,
hetja og örlagavaldur.
kveðjum við þennan mæta mann,
maðurinn sá heitir baldur.
valkyrjur nú valinn kanna,
velja menn til stórræðanna.
okkar þannig bifröst bíður,
baldur hafri þórs upp ríður.
yfir sjáum heiðna hrafna,
huginn, muninn visku safna.
heimdallur mun hliðin opna,
höldum inn og beint til vopna.
einherjar um völlinn vaða,
valhöll, staður allra staða.
miðgarður kveður, magnlaus þá
mókaður um ég svamla.
núna ég horfi niður á
nautin við bæinn minn gamla.
bærist þar líf við bæjartjörn,
balinn er umvafinn lyngi.
leika sér þarna lítil börn,
lífið, það gengur í hringi.
að okkur nú goðin gæta,
glaðir skulum kverkar væta.
mært hvern annan mætir getum,
mjöðinn drekk-m kjötið etum.
báðir tveir, jarl gunnar, grímur,
glösin tæma, kveða rímur.
búnir undir ragnarökin,
rek-m sverðin út um bökin.
sárin gróa, sorgir bakka,
sálin heil, ég óðni þakka.
lirik lagu lainnya :
- kumpulan lirik lagu damjonboi › lirik lagu tell me – damjonboi
- kumpulan lirik lagu miranda hardy › lirik lagu villains not in the news – miranda hardy
- kumpulan lirik lagu nay france › lirik lagu phenomen – näy (france)
- kumpulan lirik lagu taurus 77 › lirik lagu takë-0ff – taurus 77
- kumpulan lirik lagu giag700 › lirik lagu poirot – giag700
- kumpulan lirik lagu yung bames › lirik lagu 1 to 8 – yung bames
- kumpulan lirik lagu xavian › lirik lagu left too soon – xavian
- kumpulan lirik lagu drama trial › lirik lagu spell – drama trial
- kumpulan lirik lagu inael › lirik lagu the ghost – inael
- kumpulan lirik lagu lossheep › lirik lagu quand est-ce qu’il pleut ? – lossheep