lirikcinta.com
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu vertu mér samferða um blómalandið amma – the megas

Loading...

á sunnudögum þegar kristur tárum tefur

tillögu frá guði um þunga skatt

á gúmmívöru þá hefur maría í myrkrinu

mök við grímuklætt útfrymi með pípu hatt

en guð býr í gasbindinu amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

á mánudögum þegar kristur kennir

kærustunnarinnar og mér um allt sem miður fer

og jesaja spámaður spáir eins og galinn

og spýtir um tönn og bölvar enn og mér

en guð býr í glötunnin amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

á þriðjudögum þegar kristur kemur

á k.f.u.m.- fund og gefur börnumum dóp

og segir: “komið til mín ef þið viljið meira.”

og þau mæla ekki orð en fylgja honum eftir í hóp

en guð býr í galeiðunni amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

á daginn (miðvikudögum) þegar kristur klappar

þér á kúluvömbina og dæsir og segir: “nú!”

og skipar þér höstuglega að koma með krossinn

kalddal sé væntanlegur klukka þrjú

en guð býr í gúmmíinu amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

á miðvikudögum (síðkvöldum) þegar kristur kaupir

sér kúmenbrennivín á leyndum stað

og drekkur uns hann dettur útaf blindur

og deyr og rís upp þunnur og fer í bað

en guð býr í girðingunni amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

á fimmtudögum þegar kristur keyrir

í kátiljáknum upp að húsinum sem þeir kenna við grím

og klifrar upp turninn á nóinu og talar tungum

tveim, um ráðherrastóla og fiskilím

en guð býr í gjaldheimtunni amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

og í svartnættinu þegar kristur kynnir

sér í kauphöllinni hvort gengið það verði fellt

og menn segja: “jú, jú.” og hann upp í hjólbarðann

að hamstra dekk til að geta geymt og selt

en guð býr í gengishruni amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

á föstudögum þegar kristur kinkar

til þín kolli og tautar: “það er fullkomnað”

og þú ert það fífl að fatta ekki djókinn

fyllir geyminn og ekur strax af stað

en guð býr í gaddavírnum amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

en á laugardögum þegar kristur klæmist

vita konur á barnsfeðrum sínum pottþétt skil

og silli og valdi, þeir segjast hafa legið

sæla maríu áður en guð kom til

en guð býr í garðslöngunni amma

æ! geymdu handa mér meyjarblómið amma

lirik lagu lainnya :

YANG LAGI NGE-TRENDS...

Loading...